Málefni fatlaðra

87. fundur
Mánudaginn 24. febrúar 1992, kl. 16:04:44 (3723)

     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Félmrn. hefur ekki haft afskipti af ráðstöfun þess fjármagns sem Öryrkjabandalagið hefur vegna lottósins. Eftir því sem ég best veit hefur því verið fyrst og fremst ráðstafað í íbúðir fyrir fatlaða sem búa sjálfstætt og þurfa á engri þjónustu að halda. Í einstaka tilvikum hefur það komið til, t.d. varðandi sambýli, að Öryrkjabandalagið hefur fjármagnað stofnkostnað við það. Þá hefur það verið gert í fullu samráði við félmrn. að því er varðar kostnað við rekstur.