Framleiðsla og sala á búvörum

91. fundur
Fimmtudaginn 27. febrúar 1992, kl. 13:20:00 (3825)

     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) :
    Hæstv. forseti. Ég hef auðvitað ekkert við það að athuga að landbn. þingi milli 2. og 3. umr. um þetta mál. Ég vil aðeins ítreka það sem ég sagði á fyrirspurnafundi í morgun að væntanleg er nú í næstu viku mjög ítarleg skýrsla eftir Sigurð Líndal prófessor þar sem hann fjallar um aðdraganda fullvirðisréttarins og þær lagaheimildir sem hafa verið fyrir honum og þær venjur sem um hann hafa skapast, og óhjákvæmilegt er fyrir þá sem ætla að standa að löggjöf um þau efni að setja sig rækilega inn í þá greinargerð áður en ákvarðanir eru teknar hér í þinginu eða málið rætt út frá forsendum stjórnskipunar eða eignarréttar.