Seðlabanki Íslands

102. fundur
Mánudaginn 16. mars 1992, kl. 16:07:00 (4397)

     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) (andsvar) :
    Frú forseti. Ég vildi eingöngu taka á því sem síðast var sagt í ræðu hv. 7. þm. Reykn. um vaxtamun og samanburð á vöxtum milli landa. Ég tel heppilegra að afla þeirra upplýsinga utan þingfundar og koma þeim á framfæri við þingmanninn og aðra sem áhuga hefðu á því efni og e.t.v. telja menn ástæðu til að ræða það við síðari umræðu.