Friðun Landnáms Ingólfs fyrir lausagöngu búfjár

112. fundur
Föstudaginn 27. mars 1992, kl. 14:13:00 (4871)

     Guðni Ágústsson (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. flm. drengilega umræðu. Því síðasta sem hún sagði er ég hjartanlega sammála. Búfé sem hrekst um vegi er slæm lausaganga og það er stærsta vandamálið hvað lausagöngu varðar sem Alþingi hefur því miður ekki tekið á eða ríkisstjórn og þarf að vinda bráða bug í að að leysa þann vanda sem búfé veldur á vegum.