Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
Forseti verður að ítreka að þegar þingmenn óska eftir því að fjalla um þingsköp þá fjalli hv. þm. um þingsköp. Hæstv. ráðherra var að bera af sér sakir. Nú hefur hv. 3. þm. Vesturl. óskað eftir að fjalla um þingsköp og forseti væntir þess að hann fjalli um það efni.