Starfsemi skóla

130. fundur
Fimmtudaginn 30. apríl 1992, kl. 10:38:08 (5707)


     Fyrirspyrjandi (Kristinn H. Gunnarsson) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir skýr svör. Það er ljóst að á þessu ári verður þá ekki ráðist í það að fækka skólum á grunnskólastigi eins og hefði mátt óttast og er það í sjálfu sér fagnaðarefni að svarið er þannig að það verður ekki gert nema þá með samþykki viðkomandi sveitarstjórnar. Þetta tel ég afar þýðingarmikið að hafa fengið fram og hefur þá ákveðinni óvissu verið eytt hvað það varðar að minnsta kosti.