Lánasjóður íslenskra námsmanna

133. fundur
Miðvikudaginn 06. maí 1992, kl. 01:05:50 (5941)


     Anna Ólafsdóttir Björnsson (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Ég vil bara upplýsa það að ég var hér á fundi með hæstv. forseta, Salome Þorkelsdóttur, ásamt öðrum þingflokksformönnum stjórnarandstöðunnar, klukkan hálftólf held ég að við höfum verið boðuð, og á þeim fundi gerðum við það samkomulag að halda áfram til klukkan eitt. Ég var viðstödd þegar samkomulagið var gert og ég geri ráð fyrir að aðrir geti staðfest það. Ég kannast ekki við neitt annað og er var mjög undrandi þegar mér var gefið orðið. Að sjálfsögðu var ég hér til klukkan eitt þar sem ég var reiðubúin að tala fram til klukkan eitt eins og um var talað.