Lánasjóður íslenskra námsmanna

134. fundur
Miðvikudaginn 06. maí 1992, kl. 15:06:00 (5963)


     Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég veit ekki alveg á hverju hv. þm. byggir þennan spádóm sinn, að vextir muni hækka í framtíðinni. Kannski byggir hann þennan spádóm á því að ný vinstri stjórn taki við í landinu eftir að þessi fer. Ég get ekki séð neitt sem bendir til þess að vextir muni hækka annað en það að við lendum í nýrri verðbólguskriðu. Og ég hélt að við gætum kannski verið sammála um að það er ekki það sem við ætlum að stefna að.