Lánasjóður íslenskra námsmanna

137. fundur
Föstudaginn 08. maí 1992, kl. 11:48:00 (6133)


     Valgerður Sverrisdóttir :
    Hæstv. forseti. Við framsóknarmenn höfum lagt okkur fram um það við 1. umr. og 2. umr. málsins að reyna að leiða meiri hlutanum hér á hv. Alþingi og hæstv. menntmrh. fyrir sjónir hversu alvarleg árás þetta frv. er á námsmenn og á langskólanám í landinu. Við viðurkennum að þær brtt. sem meiri hlutinn leggur til eru allar til bóta og við metum mikils þau orð hæstv. ráðherra í gærkvöldi að hann sé samþykkur því að málið verði skoðað á milli 2. og 3. umr. Samt sem áður, þar sem við vitum ekki hvað kemur út úr þeirri athugun, teljum við rétt að þessi tillaga komi til atkvæða. Ég segi já.