Afgreiðsla mála stjórnarandstöðuþingmanna

143. fundur
Miðvikudaginn 13. maí 1992, kl. 18:08:00 (6440)


     Ólafur Þ. Þórðarson :
    Herra forseti. Ég þakka forseta fyrir hans svar og get þess jafnframt, af því að ég nafngreindi forseta sem hér starfaði alllengi, að ég tel æskilegt að það verði einnig kannað hvernig hv. 14. þm. Reykv., Guðrún Helgadóttir, sem starfaði hér sem forseti stóð að þessum málum. Það hlýtur að vera spurning um vilja hvaða vinnubrögð hér eru höfð og ég vænti þess að hæstv. forseti geri sér grein fyrir alvöru þessa máls.