Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
Ég verð að upplýsa hv. þm. um það af því að mér skilst að hann hafi verið að biðja um orðið að hæstv. ráðherra fór ekki í andsvar. Hún bað um orðið. (Gripið fram í.) Já, hv. 9. þm. Reykv. óskar að veita andsvar. Ég vil minna hv. þm. á að gefnu tilefni að gefa til kynna í hvaða tilgangi þeir biðja um orðið.