Skipaútgerð ríkisins

145. fundur
Föstudaginn 15. maí 1992, kl. 01:09:30 (6630)

     Frsm. samgn. (Sturla Böðvarsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. frá hv. samgn. um frv. til laga um brottfall laga um Skipaútgerð ríkisins, nr. 40/1967.
    Nefndin hefur fjallað um frv. og fékk á sinn fund Benedikt Jóhannesson, formann

stjórnarnefndar Skipaútgerðar ríkisins. Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt. Þeir nefndarmenn sem skrifa undir með fyrirvara áskilja sér rétt til að flytja eða fylgja brtt.
    Auk mín skrifa undir nál. Árni M. Mathiesen, Sigbjörn Gunnarsson, Guðni Ágústsson með fyrirvara, Sigríður Anna Þórðardóttir, Árni Johnsen, Jóhann Ársælsson með fyrirvara, Jóna Valgerður Kristjánsdóttir með fyrirvara og Stefán Guðmundsson með fyrirvara.