Skipaútgerð ríkisins

146. fundur
Föstudaginn 15. maí 1992, kl. 11:29:00 (6639)


     Guðrún Helgadóttir (andsvar) :
    Það gleður mig að hæstv. ráðherra hefur lesið eitthvað fallegt eftir að hann kom heim í gærkvöld til að undirbúa sig undir að svara þingheimi fyrir þetta mál, en það hlýtur að vera með hreinum ólíkindum að þjóðþingi sé boðið upp á annað eins svar. Það vill nefnilega svo til að hæstv. ráðherra er gjörsamlega rökþrota í þessu máli. En ég skal ekki kvarta. Það er ævinlega gaman að heyra fallegan texta og vel sagðan, en ég bið menn að lesa gang þessa máls í þingtíðindum og það er ekki ómerkari lesning.