Skipaútgerð ríkisins

148. fundur
Laugardaginn 16. maí 1992, kl. 13:04:52 (6790)

     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Herra forseti. Hv. þm. halda því fram að það hafi tapast rúmlega 70 millj. kr. af þeim sökum að Færeyjaflutningar drógust saman í tvo mánuði sem nam 600 tonnum. Heildarflutningar Skipaútgerðar ríkisins á síðasta ári voru 99 þús. tonn. Við erum að tala þarna um 600 tonn. Heildartekjur voru 308 millj.

kr. og það er undarlegur hlutfallareikningur ef fyrir þessi 60 tonn hefði átt að fást rúmlega 1 millj. kr. á hvert tonn í flutningatekjur.