Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson)
:
Hæstv. forseti. Vegna þeirra spurninga sem hv. 1. þm. Austurl. og hv. 8. þm. Reykn hafa beint til hæstv. landbrh., mín og ríkisstjórnarinnar vil ég taka það skýrt fram að sá skilningur sem við lýstum hér áðan, ég og landbrh., hefur komið fram af hálfu íslensku samningamannanna og honum hefur verið komið á framfæri við samningamenn Evrópubandalagsins. Málið verður útkljáð á vettvangi sameiginlegu nefndarinnar sem ákvæði eru um í samningnum eins og þingmönnum er kunnugt.