Verðjöfnunarsjóður sjávarútvegsins

152. fundur
Þriðjudaginn 19. maí 1992, kl. 18:21:18 (7101)

     Ólafur Þ. Þórðarson :
    Herra forseti. Þar sem sjálfur forstjóri Þjóðhagsstofnunar hefur verið kallaður til vitnis til að dæma um misvitur störf stjórnmálamanna og hann með réttu bent á þá staðreynd að ekki er um verðfall á afurðum okkar að ræða þá þykir mér rétt að fram komi að hvað mig áhrærir ég tel að slæmt stjórnarfar sé ekki minni ástæða til útgreiðslu úr sjóðnum. Þess vegna segi ég já.

    Frv. afgr. sem lög frá Alþingi (þskj. 1041