Heimild til að selja kirkjujörðina Stóru-Borg

152. fundur
Þriðjudaginn 19. maí 1992, kl. 18:42:43 (7103)



     Árni M. Mathiesen :
    Virðulegi forseti. Þetta er mjög sérstakt mál sem við erum að fjalla um og hefur reynst mjög erfitt að fá fram þær upplýsingar sem eftir hefur verið leitað. Þó hafa þær upplýsingar, sem fram hefur komið, bent til þess að núverandi eigandi jarðarinnar hafi þurft að sæta kostum sem ekki tíðkuðust á þeim tíma þegar kaupin voru gerð. Þar sem ég hef ekki ástæðu til þess að rengja þá sem hafa komið fram með þessar upplýsingar og að mér virðist að þessi maður hafi sætt sérstökum kjörum, þá segi ég já.