Evrópska efnahagssvæðið (EES)

8. fundur
Miðvikudaginn 16. október 1991, kl. 13:50:00 (212)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Eins og forseti gat um í upphafi fundar fer nú fram utandagskrárumræða um EES að beiðni stjórnarandstöðuþingflokkanna. Þessi umræða fer fram skv. 2. mgr. 50. gr. þingskapa. Vill forseti jafnframt geta þess að það er samkomulag um það við formenn þingflokkanna að þessi umræða megi standa fram undir kl. hálfsex ef nauðsyn krefur þannig að þingflokksfundum verður þá frestað sem því nemur.