Kristín Ástgeirsdóttir
:
Virðulegi forseti. Ég verð að lýsa vonbrigðum mínum með þetta svar. Eins og ég nefndi þá hafa þessir samningar staðið mánuðum saman og mér þykir það vægast sagt undarlegt ef menn hafa ekki reynt fyrir fram að gera sér einhverja grein fyrir því hvað af þessum samningi leiðir og hvað hann muni kosta íslenska ríkið.