Framhaldsdeildir við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra

21. fundur
Fimmtudaginn 07. nóvember 1991, kl. 12:23:00 (750)

     Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson) :
     Hæstv. forseti. Ég vil aðeins lýsa því yfir að ég mun athuga þetta mál af fullri vinsemd. Mér er ljóst að það er þó nokkur hópur sem sækir eftir námi, bæði vélstjórnarnáminu og sjúkraliðanáminu, en hann nær ekki þeirri tölu sem ráðuneytið hefur hingað til miðað við, en ég mun athuga þetta mál sérstaklega.