Frestur á framkvæmdum við álver á Keilisnesi

24. fundur
Þriðjudaginn 12. nóvember 1991, kl. 22:48:00 (908)

     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
     Virðulegi forseti. Ég verð að segja að mér finnst þetta afar billegt svar hjá hæstv. forsrh. Hann hefur að vísu tíðkað það að draga fram ýmis plögg úr forsrn. frá fyrri tíð en ég hef ekki heyrt hann áður vitna úr ræðustól Alþingis í eitthvað tiltekið minnisblað í forsrn. Gjörðin er hæstv. núv. ríkisstjórnar. Alveg sama hvað öllum minnisblöðum líður þá er gjörðin að fella niður staðgreiðslu skatta núv. ríkisstjórnar.