Yfirtaka á skuldum orkufyrirtækja

29. fundur
Þriðjudaginn 19. nóvember 1991, kl. 13:45:00 (1024)

     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
     Ég þakka hæstv. iðnrh. fyrir þessi svör. En honum til upplýsingar get ég sagt honum að fyrir árið 1989 var innheimt upp í þessa skuld hjá Orkubúi Vestfjarða 32 millj. kr. og fyrir árið 1990 eru til innheimtu 58 millj. kr. hjá sama fyrirtæki. Enn fremur að í ríkisreikningi 1989 er yfirtaka þessara skuldabréfa færð á rekstrarreikning til gjalda í einu lagi. Það er því undarlegt að nú skuli vera byrjað að innheimta upp í þessa yfirteknu skuld sem búið er að gjaldfæra í rekstri ríkisins.