Skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði

35. fundur
Miðvikudaginn 27. nóvember 1991, kl. 14:54:00 (1292)

     Kristín Ástgeirsdóttir :
     Virðulegi forseti. Við umræðu um þetta mál lýstum við því yfir að við óskuðum eftir ákveðnum upplýsingum um skattastefnu ríkisstjórnarinnar og þau tekjuöflunarfrumvörp sem enn eru ókomin. Þar sem ekkert hefur skýrst um stöðu þessara mála þá munum við sitja hjá við þessa atkvæðagreiðslu.