Seðlabanki Íslands

37. fundur
Fimmtudaginn 28. nóvember 1991, kl. 14:10:00 (1388)

     Steingrímur Hermannsson (andsvar) :
     Virðulegi forseti. Það er rétt sem hæstv. viðskrh. í þessu tilfelli sagði að ég lýsti andstöðu minni við frv. í minni fyrstu ræðu. Ég sagði hins vegar áðan að ýmsan fróðleik væri að finna i þeim skýrslum sem eru komnar og ég hef sannfærst um að það kunni að vera rétt að reyna þetta stýrða flot eða hvað menn vilja kalla það og vísa til þess að þetta tók ég skýrt fram áðan þannig að ef hent er út 1. mgr. frv. get ég stutt það.