Karl Steinar Guðnason
:
Hæstv. forseti. Varðandi þá spurningu, sem hér hefur verið lögð fram, vil ég segja að þessi breyting hefur engin áhrif á framkvæmdir í ár og í fskj. sem lagt var fram við 2. umr. var greint frá þessari skiptingu.
Hvað varðar næsta ár þá á ég ekki von á breytingu en það kemur náttúrlega til umræðu þegar við ræðum fjárlögin. Eftir því sem vegamálastjóri hefur fullyrt við mig og hefur verið lýst yfir áður verður ekki nein breyting hvað þessar framkvæmdir varðar.