Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal)
:
Hæstv. forseti. Ég tók skýrt fram að það væri verið að tala um almennar reglur sem ekki varðar leiguflug eingöngu heldur þá sem standa fyrir því að skipuleggja ferðir og selja á almennum markaði.