Þingfrestun

59. fundur
Sunnudaginn 22. desember 1991, kl. 04:48:00 (2510)

     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
     Virðulegi forseti. Forseti Íslands hefur gefið út svohljóðandi bréf:
    ,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:
    Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis 115. löggjafarþings, frá 22. desember 1991 og standi sú frestun til 6. janúar 1992 nema kveðja þurfi Alþingi saman skv. síðari mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar.
Gjört í Reykjavík, 21. desember 1991.

Vigdís Finnbogadóttir.



Davíð Oddsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.``
    
    Samkvæmt þessu umboði og með tilvísun til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því að fundum þessa Alþingis, 115. löggjafarþings, er frestað.
    Leyfi ég mér að óska hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins, svo og landsmönnum öllum, gleðilegra jóla og farsæls nýs árs.