Ferill 268. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 268 . mál.


449. Fyrirspurn

til utanríkisráðherra um aðild Íslands að alþjóðasamningum.

Frá Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur.



1.        Hvaða gildandi alþjóðasamningar eða sáttmálar hafa verið undirritaðir af Íslands hálfu og hverjir þeirra hafa hlotið staðfestingu Alþingis?
2.        Hverjir þeirra hafa verið þýddir á íslensku og/eða gefnir úr af stjórnvöldum þannig að þeir séu aðgengilegir almenningi?

    Samningarnir óskast sundurliðaðir eftir málefnasviðum ráðuneytanna.


Skriflegt svar óskast.