Ferill 359. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 359 . mál.


578. Fyrirspurn



til forsætisráðherra um embætti húsameistara ríkisins.

Frá Kristínu Ástgeirsdóttur.



    Er það mat forsætisráðherra að hagkvæmara sé fyrir ríkið að reka eigin teiknistofu en að bjóða út hönnun nýbygginga og viðgerðir á vegum hins opinbera?
    Áformar ríkisstjórnin að breyta eða leggja niður embætti húsameistara ríkisins?