Ferill 512. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 512 . mál.


825. Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um þýðingu á skýrslu Sameinuðu þjóðanna um stöðu kvenna í heiminum 1970–1990.

Frá Önnu Ólafsdóttur Björnsson.



    Hefur ráðherra í hyggju að láta þýða á vegum ráðuneytis síns skýrslu Sameinuðu þjóðanna „The World's Women Trends and Statistics 1970–1990“ sem út kom á sl. ári og hefur að geyma yfirgripsmiklar upplýsingar um stöðu kvenna í heiminum?