Ferill 193. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 193 . mál.


982. Breytingartillögur



við till. til þál. um afnám misréttis gagnvart samkynhneigðu fólki.

Frá félagsmálanefnd.



    Tillgr. orðist svo:
                  Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa nefnd til þess að kanna stöðu samkynhneigðs fólks á Íslandi. Nefndin skal skipuð fulltrúum dómsmálaráðuneytis, menntamálaráðuneytis, félagsmálaráðuneytis og hagsmunasamtaka samkynhneigðs fólks. Skal nefndin kanna lagalega, menningarlega og félagslega stöðu þess og gera tillögur um úrbætur og nauðsynlegar aðgerðir til þess að misrétti gagnvart samkynhneigðu fólki hverfi hér á landi.
    Fyrirsögn tillögunnar orðist svo: Till. til þál. um skipun nefndar til að kanna stöðu samkynhneigðs fólks.