Evrópskt efnahagssvæði

98. fundur
Laugardaginn 09. janúar 1993, kl. 16:02:04 (4562)

     Karl Steinar Guðnason (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég vil leiðrétta hv. fulltrúa afturhaldsins, að fyrir ASÍ-þingi lágu ekki drög að ályktunum, það er rangt. Það lá frammi skýrsla frá sérfræðingum Alþýðusambandsins um EES-málefni og það voru engar tillögur sem voru þar inni.
    Hins vegar er það alveg ljóst að ASÍ leggst ekki gegn Evrópska efnahagssvæðinu, öðru nær.