Kaup á björgunarþyrlu

117. fundur
Fimmtudaginn 25. febrúar 1993, kl. 14:52:08 (5452)

     Ólafur Þ. Þórðarson (andsvar) :
    Herra forseti. Það er ekki á hverjum degi sem menn koma upp í þennan ræðustól til að lýsa yfir trausti á ráðherra landsins og það gera varla nema kjarkmenn núorðið. En það kom líka fram að hann hafði þann fyrirvara að hann sagði að það væri í þessu máli, svo rétt sé með farið. Ég vil ekki gera lítið úr því. Ég vona að hann hafi eitthvað fyrir sér í þessum efnum en því miður er það svo, og kannski sem betur fer fyrir mig, að ég þarf ekki að bera ábyrgð á hæstv. ráðherrum og játa það hreinskilnislega að ég treysti þeim ekki of vel í þessu máli.