Iðn- og verkmenntun

123. fundur
Mánudaginn 08. mars 1993, kl. 15:29:57 (5763)

     Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson) (andsvar) :
    Herra forseti. Mér er ekki kunnugt hvort þessari skýrslu sem Jón Torfi Jónasson samdi hefur verið dreift. Hún er til í menntmrn. og mér finnst það alveg sjálfsagt mál að þingmenn fái hana og menntmn. í hinu ítarlega formi og það er sjálfsagt að ég beiti mér fyrir því. Þá býst ég nú ekki við að það þurfi neitt sérstaklega að hvetja til þess að 18 manna nefndin fái útskrift af þessari umræðu, það þykir mér líka sjálfsagt.