Sóttvarnalög

127. fundur
Fimmtudaginn 11. mars 1993, kl. 17:38:45 (5996)

     Heilbrigðisráðherra (Sighvatur Björgvinsson) :
    Virðulegi forseti. Þetta er í fjórða sinn sem gerð er til raun til þess að ná fram á Alþingi samþykktum á nýjum lögum um sóttvarnir. Fyrrv. hæstv. heilbrrh. mælti tvívegis fyrir slíku frv. hér á Alþingi án þess að það fengist samþykkt og það er í annað sinn nú sem sá sem hér stendur mælir fyrir frv. í von um að hv. Alþingi sjái sér færi á því að samþykkja málið og vona ég að fullreynt sé í fjórða sinn.
    Um nokkurt skeið hefur það verið skoðun manna að nauðsynlegt sé að endurskoða lagaákvæði um farsóttir og sóttvarnir. Það var fyrrv. heilbr.- og trmrh. sem skipaði nefnd í október 1988 sem fékk það verkefni að endurskoða sóttvarnalögin sem eru orðin allgömul eða frá 1954. Þar að auki farsóttalögin frá 1958 og svo loks ýmis sérlög um varnir gegn tilteknum smitsjúkdómum, svo sem berklavarnalögin frá 1939, lög um varnir gegn kynsjúkdómum frá 1978 og lög um varnir gegn holdsveiki frá síðustu aldamótum. En eins og hv. þm. sjá á þessari upptalningu, þá er hér um allgamla lagasmíð að ræða sem vissulega er kominn tími á að endurskoða.
    Í nefndina voru skipaðir Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri og var hann formaður, Guðjón Magnússon skrifstofustjóri, Haraldur Briem, sérfræðingur í smitsjúkdómum, Skúli Johnsen, héraðslæknir í Reykjavík og Dögg Pálsdóttir, skrifstofustjóri í heilbrrn.
    Nefndin skilaði fullbúnu frv. ásamt fylgiskjölum í september 1989 og var frv. lagt fram óbreytt frá tillögum nefndarinnar á 112. löggjafarþinginu en náði ekki fram að ganga. Haustið 1990 endurskoðaði farsóttanefnd frv. m.a. með hliðsjón af þeim umsögnum sem borist höfðu Alþingi. Í farsóttanefnd eiga sæti Ólafur Ólafsson landlæknir, sem er formaður nefndarinnar, Haraldur Briem læknir, Skúli Johnsen héraðslæknir, Ólafur Steingrímsson læknir, Hrafn Tuliníus prófessor, Margrét Guðnadóttir prófessor og Sigurður B. Þorsteinsson læknir.
    Farsóttanefndin gerði nokkrar breytingar á frv. og var það lagt fram í þeirri mynd sem farsóttanefnd var sammála um að Margréti Guðnadóttur undanskilinni á 113. löggjafarþingi vorið 1991. Frv. náði ekki þá heldur fram að ganga. Frv. var enn lagt fram á 115. löggjafarþinginu, síðasta þingi, nánast óbreytt sem það var lagt fram á 113. löggjafarþinginu að öðru leyti en því að gert er ráð fyrir í þessu frv. að kostnaður vegna sóttvarna verði greiddur eins og annar sjúkrakostnaður.
    Frv. er nú lagt fram í fjórða sinn óbreytt frá síðasta vori að öðru leyti en því að gert er ráð fyrir gildistöku 1. jan. 1994. Þau nýmæli helst sem koma fram í frv. frá fyrri lögum eru eftirfarandi:
    1. Gerð er tillaga að rammalöggjöf þar sem samin verði í ein lög ákvæði um farsóttavarnir, sóttvarnir og varnir gegn tilteknum smitsjúkdómum. Hér er fylgt fordæmi annarra nágrannaþjóða, svo sem Norðurlanda og Bretlands. Verði frv. að lögum mun það hafa í för með sér umtalsverða lagahreinsun þar sem gert er ráð fyrir að a.m.k. 9 lög og sérlög falli úr gildi við setningu laganna.
    2. Gert er ráð fyrir í frv. að ábyrgð á sóttvörnum verði áfram hjá embætti landlæknis. Samkvæmt gildandi lögum eru héraðslæknar sóttvarnalæknar hver í sínu héraði og auk þess skulu sóttvarnanefndir starfa í öllum kaupstöðum og er tollstjóri á hverjum stað formaður. Í ljósi gerbreyttra samgangna þykir eðlilegt að fella sóttvarnanefndina niður. Jafnframt þessu þykir nauðsynlegt að hjá embætti landlæknis verði ráðinn til starfa sérstakur læknir sem hefur sem aðalstarf að vinna að sóttvarnamálum. Þetta er talið nauðsynlegt til að tryggja nauðsynlegt samræmi í sóttvörnum um landið allt, en að sjálfsögðu bera héraðslæknar eftir sem áður ábyrgð á sóttvörnum hver í sínu héraði undir yfirstjórn sóttvarnalæknis og heilsugæslulækna og aðrir læknar eftir því sem við á.
    3. Í skýrslugerð vegna smitsjúkdóma er fylgt mjög sambærilegum reglum og nú þegar gilda samkvæmt hinum ýmsu lögum um þessi efni, en þó er ákvæði um skýrslugerð mun skýrara en í gildandi lögum.
    Ég tel ekki ástæðu til að fjalla ítarlegar um þetta frv. að þessu sinni. Það hefur þegar verið gert þrívegis á Alþingi og ég gerði það sjálfur á síðasta Alþingi auk þess sem breytingarnar sem gerðar hafa verið eru ekki þess eðlis að efni frv. hafi breyst svo að neinu nemi. Ég vil þó sérstaklega leyfa mér að undirstrika þá lagahreinsun sem samþykkt þessa frv. hefur í för með sér.
    1. Berklavarnarlög frá 1939.
    2. Lög um ráðstafanir til varnar gegn fýlasótt frá 1940.
    3. Lög um eyðingu á rottum frá 1945.
    4. Lög um hundahald og varnir gegn sullaveiki frá 1953.
    5. Sóttvarnarlög frá 1954.
    6. Farsóttalög frá 1958.
    7. Lög um varnir gegn kynsjúkdómum frá 1978 með breytingu frá 1986.
    Með frv. er eitt fskj. þar sem taldir eru þeir smitsjúkdómar sem vænta má að reglugerð geri ýmist tilkynningarskylda eða skráningarskylda. Með frv. sem lagt var fram 1989 voru ítarleg fskj. um þróun íslenskrar löggjafar á þessu sviði sem og erlendrar löggjafar. Ekki var talin ástæða til að endurprenta þessi fskj. að þessu sinni.
    Vegna umsagnar fjárlagaskrifstofu fjmrn. sem fylgir með frv. vil ég taka fram að þar er ekki tillit tekið til þess að vísir að göngudeildum eins og frv. gerir ráð fyrir er þegar fyrir hendi. Sömuleiðis munu ýmis sérgreind embætti lækna leggjast niður. Við kostnaðarmat fjmrn. er ekki heldur tekið tillit til þessa. Ég tel því að kostnaðarmat fjárlagaskrifstofunnar vegna frv. sé of hátt en óska eftir því að hv. heilbr.- og trn. sem væntanlega fær frv. þetta til meðferðar yfirfari þau mál.
    Ég hef nú í stuttu máli gert grein fyrir því lagafrv. sem hér er lagt fram. Ég tel að hér hafi tekist vel til um að endurskoða og einfalda löggjöf um smitsjúkdóma og sóttvarnir og flestir eru sammála um að löngu var tímabært að gera breytingar á lagaákvæðum okkar í samræmi við breytta tíma. Ég vona að frv. fái nú jákvæðar undirtektir á Alþingi þannig að það þurfi ekki að leggja það fram í fimmta skipti og að það geti síðan gengið í gildi eins og gert er ráð fyrir í ársbyrjun 1994.
    Frú forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frv. verði afgreitt til 2. umr. og hv. heilbr.- og trn.