Tekjuskattur og eignarskattur

128. fundur
Mánudaginn 15. mars 1993, kl. 15:55:39 (6051)


     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Það er náttúrlega ekki þannig þó að skrifaðar séu blaðagreinar um eitthvað sem á að hafa gerst inni í ríkisstjórn að sé því sem þar er skrifað ekki svarað lið fyrir lið, þá standi þær greinar. Það veit hv. þm. sem verið hefur ráðherra sjálfur.
    En vegna þeirra ummæla og spurninga um það sem fram kom hjá hæstv. viðskrh. á hátíðarfundi iðnaðarins, þá var ekki bara svo að mér væri kunnugt um þau orð sem þar féllu, heldur las ég þann texta yfir, hvert einasta orð áður en hæstv. viðskrh. gaf þá yfirlýsingu þannig að hún var í fullu samráði við mig gefin.