Halldór Ásgrímsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég vildi aðeins þakka hæstv. viðskrh. fyrir þessi svör. Ég tel þau fullnægjandi og staðfesta það sem segir í nál. meiri hlutans og tel hér hafa komið fram viljayfirlýsingu hæstv. viðskrh. að standa við það af sinni hálfu sem þar stendur.