Varamenn taka þingsæti

136. fundur
Mánudaginn 22. mars 1993, kl. 13:35:16 (6320)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseta hefur borist eftirfarandi bréf, sem dags. er 22. mars 1993:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Framsfl. í Norðurl. e., Guðmundur Stefánsson framkvæmdastjóri, Akureyri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.``

    Undir þetta bréf ritar Guðmundur Bjarnason, 1. þm. Norðurl. e.
    Guðmundur Stefánsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa.
    Þá hefur hér borist annað bréf, sem einnig er dags. 22. mars 1993:
    ,,Þar sem ég vegna aðkallandi starfa get ekki setið á Alþingi næstu tvær vikurnar í veikindaforföllum Matthíasar Bjarnasonar, 1. þm. Vestf., fer ég fram á að 2. varaþm. Sjálfstfl., Jörgína Jónsdóttir útibússtjóri, Tálknafirði, taki sæti á Alþingi.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, hæstv. forseti.``
    Undir þetta bréf ritar Guðjón A. Kristjánsson, 1. varaþm. Sjálfstfl. í Vestfjarðakjördæmi.
    Jörgína Jónsdóttir hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi, en kjörbréf hennar hefur verið rannsakað. Hún mun nú undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.