Vörugjald af ökutækjum

152. fundur
Mánudaginn 05. apríl 1993, kl. 18:53:05 (6891)

     Jóhann Ársælsson (um þingsköp) :
    Virðulegur forseti. Ég held að ekki sé hægt að horfa upp á að greidd séu atkvæði úr sæti sem enginn situr í, en ef við horfum á töfluna og skoðum hvar hv. 17. þm. Reykv. situr, þá hefur verið greitt atkvæði í því sæti án þess að hann sé þar. Enda þótt hann sé magnaður maður getur hann ekki fjarstýrt atkvæðagreiðslunni og enginn af þeim sem eru þar nærri hafa komið nærri þeim takka, hann er fastur niðri eins og hv. 17. þm. Reykv. tilkynnti hér áðan. Atkvæðagreiðsla sem fer þannig fram getur ekki verið gild í Alþingi.