Svavar Gestsson :
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir þessar upplýsingar. Ástæðan til þess að ég var að reka á eftir skýrslunni var sú að ég hafði hugsað mér að fara fram á það að hér færu fram umræður um stefnu ríkisstjórnarinnar að því er varðar rannsóknir, þróun og vísindastarfsemi og ef skýrslan verður lögð fram í næstu viku ætti að vera kostur á því.