Afgreiðsla allsherjarnefndar á frv. til skaðabótalaga

167. fundur
Föstudaginn 30. apríl 1993, kl. 12:33:18 (7729)

     Kristinn H. Gunnarsson :
    Virðulegi forseti. Það er óhjákvæmilegt að vekja athygli forseta á því að varaformaður allshn. hefur lýst því yfir í blöðum að það sé ekki búið að ræða þetta frv. til hlítar í nefndinni, allshn., þar sem ég á sæti. Engu að síður er málið komið á dagskrá þingsins. Þetta gengur ekki upp. Menn verða að gefa skýringar á þessu misræmi. --- [Fundarhlé.]