Menningarsjóður

173. fundur
Fimmtudaginn 06. maí 1993, kl. 23:54:49 (8121)

     Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson) (um atkvæðagreiðslu) :
    Hæstv. forseti. Mig langar bara til þess að vita hvort það sé samkvæmt þingsköpum að menn greiði atkvæði hér um einstök orð í miðjum setningum. Ég hef aldrei orðið var við það fyrr á nokkuð löngum þingferli og mig langar til að fá svar við þessari spurningu.