Frsm. heilbr.- og trn. (Sigbjörn Gunnarsson)
:
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir áliti heilbr.- og trn. um till. til þál. um réttarstöðu barna með krabbamein og annarra sjúkra barna. Tillagan gengur út á að ríkisstjórninni verði falið að skipa nefnd til að fara yfir og gera tillögur um bætta réttarstöðu barna með krabbamein svo og annarra sjúkra barna.
Nefndin hefur fjallað um málið og mælir einróma með samþykkt þess. Undir það rita allir nefndarmenn.