Evrópskt efnahagssvæði

16. fundur
Miðvikudaginn 09. september 1992, kl. 23:23:35 (449)


     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar) :
    Herra forseti. Það veit þingmaðurinn jafn vel og ég og lá ljóst haustið 1990 fyrir að full fríverslun með fisk mundi ekki nást. Engu að síður hélt þáv. ríkisstjórn og utanrrh. hennar samningaviðræðum áfram í málinu þannig að sá kafli sem þingmaðurinn las á ekki við um það að menn telji á þeirri stundu að hægt sé að knýja það fram í þessum samningum að um verði að ræða hreina fríverslun með fisk. Það náðist ekki fram og það lá fyrir þegar haustið 1990. Þetta hygg ég að þingmaðurinn viti.