Evrópskt efnahagssvæði

16. fundur
Fimmtudaginn 10. september 1992, kl. 02:16:04 (492)

     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseti hefur fyrr í kvöld óskað eftir því að menn geri sitt besta, bæði hæstv. ráðherrar og hv. þingmenn, til þess að greiðlega megi ganga að svara því sem spurt er að og ræða það sem á dagskrá er. Forseti getur vart betur gert. Þar sem enn er eitt mál á dagskrá sem nú verður tekið fyrir vill forseti taka undir það með hv. þm. að það er ósk forseta að hæstv. ráðherrar og hv. þingmenn reyni að gera sig sem skiljanlegasta hver fyrir öðrum þannig að svo megi fara um umræðu sem ætlast var til.