Hagræðingarsjóður sjávarútvegsins

21. fundur
Þriðjudaginn 15. september 1992, kl. 16:20:01 (743)

     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Forseti var sammála hv. þm. þegar það kom fram hjá honum í gær að hann mundi meta það eftir umræðuna í dag hvort hann heldur til streitu ósk sinni um utandagskrárumræðu um sjávarútvegsmál. Það mun að sjálfsögðu fara eftir því hvernig umræðan leggst í dag.