Hagræðingarsjóður sjávarútvegsins

21. fundur
Þriðjudaginn 15. september 1992, kl. 22:50:15 (789)

     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :

    Virðulegi forseti. Mér þykir auðvitað mjög vænt um að heyra að hv. þm. Össur Skarphéðinsson sé sammála þessu sem ég var að benda á. En það breytir því ekki að það er hann sem hefur valdaaðstöðu til að breyta þessum málum. Hann er formaður sjútvn. þingsins og hann á aðild að ríkisstjórninni. Hann er starfandi formaður sjútvn., er það ekki rétt? ( Gripið fram í: Nei.) Allt um það þá hefur hann og hans ríkisstjórn ekki komið með neinar tillögur um að bæta þessa stöðu. En vonandi fara þær að líta dagsins ljós.