Forseti (Pálmi Jónsson) :
Vegna fyrirspurna hv. þm. og athugasemda vil ég fyrst geta þess að sá forseti sem situr á forsetastóli hverju sinni er forseti þingsins. Ég vil einnig geta þess að í 42. gr. þingskapa segir:
,,Lagafrumvarpi, sem felur í sér tillögu um breytingu á stjórnarskránni eða viðauka við hana, skal vísað til sérnefndar skv. 32. gr. Í fyrirsögn skal það nefnt frumvarp til stjórnarskipunarlaga. Hafi það eigi þá fyrirsögn vísar forseti því frá.``
Hv. þm. sem aðrir hv. alþm. hljóta að gera sér ljóst að það frv. sem hér er á dagskrá fjallar ekki um stjórnarskrána eða breytingar á henni.