Kjaradómur

24. fundur
Föstudaginn 18. september 1992, kl. 11:08:27 (1023)


     Ólafur Þ. Þórðarson :
    Herra forseti. Hér fer fram atkvæðagreiðsla um frv. sem hefur svo vitlausan texta að hæstv. ríkisstjórn hefur þegar lagt fram stjfrv. þar sem fram kemur að verði það samþykkt verður texti þessa frv. að engu gerður. Ég tel rétt að stjórnarsinnar njóti þess einir að bera ábyrgð á því að setja þá hluti í lög sem hér hefur verið gert og segi nei.