Jarðhitaréttindi

28. fundur
Fimmtudaginn 08. október 1992, kl. 14:41:38 (1197)

     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Forseta er ljúft að upplýsa hv. 4. þm. Austurl. um það að forseti stjórnar hér eftir leikreglum þingskapa. Ég veit ekki hvort hv. þm. hefur veitt því athygli að ég hafði gefið hv. 2. þm. Suðurl. orðið. Ég tek ekki orðið af hv. þm. sem þegar hefur fengið orðið. Í þingsköpum er skýrt kveðið á um það að til þess að hv. þm. fái orðið til andsvars skuli hann biðja um það strax að lokinni ræðu þess ræðumanns er hv. þm. óskar eftir að veita andsvar við. Það ,,strax`` var liðið þegar hv. 2. þm. Suðurl. var veitt orðið.